FLY SOMEDAY ON DA WINGZ UF LUUV:)

VIVA LA VÍNÓ !!!!

15.04.2007 16:54:57 / hafrunbjoss

Er sumarið handan við hornið !!!

Jæja, páskarnir búnir og sumarið að fara taka við 8)  Það var alveg endalaust æðislegt fyrir austan hjá ma og pa og familíunni, étið á sig gat sofið út djammað hitta frábæru vinina!!  rífa niður sturtuhengi  8| fara á ball, dansa og tjútta.   Fara í krikket á páskadag útá Horni á ströndinni!!  Dæmalaust frábært:)

En verð nú að tala um daginn í dag, þar sem ég tel mig vera orðin heilsufrík á ný, reif mig á fætur klokkan 9 í morgun dröslaðist í sund í sólinni alla leið upp í Grafarvog (í sveitina) krækti mér í nokkrar freknur og sólarexem á bringuna, BARA fersk8|  En ég hef nú samt aldrei lent í þessu eins og í morgun í sundinu góða, lá þarna í mínum mestum makindum að sóla mig, ætlaði heldur betur að verða brún, kemur þá ekki bilað haglél!  Já svei mér þá, jú þetta er kannski íslensk veðrátta í hnotskurn, en ég bara bjóst ekki við þessu!! Hnipraði mig saman út i horni í heitapottinum þar sem eldri kona var í jet stream tæki, sem er eins konar nuddtæki, hún kunni greinilega ekki að stilla þetta flókna stream tæki þannig að það fór á full speed og beint framan í mig á 100 km hraða...  Já stundum virðist óheppnin elta mann uppi!!!  Þetta var nú pínu skondið, vissi ekki hvert gamla ætlaði hahaha.....   

Svo er nú dagurinn ekki búin, er að fara í Skvass í kvöld með mexíkóanum, ætla sýna honum mína snilldartakta þar sem ég tel mig vera orðin alveg vibba góða!!!   Ég er semsagt komin með Skvazz æði dauðans!! 

Jæja þá er þessu lokið í dag............ kveð  Hafrún 

 

 

 

KOlls skrifaði
Bíddu hver er mexíkóinn... er eitthvað sem ég veit ekki.....
Kristbjörg skrifaði
Hæ skvís, í fyrstalagi, hvað varstu að gera lengst uppi í sveit þar sem þú ert með svo æðislega sundlaug rétt hjá þér? En gott að þú ert svona dugleg. sjáumst eftir rúma viku.
Svanfríður skrifaði
Dugleg ertu að drífa þig í sund-ég bjó í 3 ár í Gravarvogi og fór aldrei í laugina þar. Gott að sjá þig blogga aftur-alltaf gaman að fylgjast með þér.
Kolls skrifaði
Veit núna hver litli mexícóinn er haha, litla syst sagði mér það....
Hafrún skrifaði
Já Kolla mín, þú verður sú fyrsta sem fær að vita ef eitthvað er að gerast hjá mér í þessum málefnum;)
Hanna skrifaði
ji minn einasti hvað þú ert fáránlega fyndin. ég hnipraði mig saman út í horni og meig á vegginn eins og hundur úr hlátri

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Hornafréttir!